Málþing til heiðurs Kristjáni Eldjárn
Þjóðminjasafn Íslands og Félag fornleifafræðinga standa sameiginlega að dagskrá í tilefni afmælisdags Dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Dagskráin fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 5. desember, kl 12-14:15.
Kristján vakti áhuga þjóðarinnar á fornleifum í gegnum rannsóknir sínar, skrif og þáttagerð. En hvernig gengur að miðla þeirri sögu sem fornleifarnar hafa að geyma til íslensku þjóðarinnar og erlendra ferðamanna?
Snædís Sunna Thorlacius, formaður Félags fornleifafræðinga stýrir dagskránni.
Dagskrá
Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður setur viðburðinn.
Viðey - Miðlun menningarsögu: Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fv. þjóðminjavörður
Tækifæri í fornleifaferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu: Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Fornleifar og ferðaþjónusta - Hvað viljum við vita?: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
KAFFIHLÉ
Raddir úr rústum - Miðlun sögu og fornleifa til gesta á Þingvöllum og Hrafnseyri: Margrét Hrönn Hallmundsdóttir, staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð og fyrrverandi deildarstjóri fornleifadeildar Náttúrustofu Vestfjarða
Frá mold til miðlunar - Ferðamenn og fornleifar á Skriðuklaustri: Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar
Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Öll velkomin, enginn aðgangseyrir!