Menningararfur í hættu - málþing
6. nóvember kl. 13:00-15:30
Menningarminjadagar Evrópu
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgata 41 Reykjavík
Málþing Minjastofnunar Íslands og Félags fornleifafræðinga í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands verður haldið föstudaginn 6.nóv 2026 kl. 13:00 - 15:30. Ókeypis inn og öll velkomin!
Málþingið verður tekið upp og stefnt er á að birta upptöku á Youtube rásum Minjastofnunar og Félags fornleifafræðinga að málþingi loknu.
Viðburðurinn er haldinn í tilefni af menningarminjadögum Evrópu 2026.
