Fara í efni

Námskeið - Varðveisla eldri húsa

Námskeið fyrir fag- og áhugafólk um viðgerðir og viðhald eldri húsa verður haldið á Árbæjarsafni dagana 23-24. október. 

Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í helstu þætti er varða endurbætur og varðveislu eldri húsa.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

-Lög og reglugerðir er varða viðgerðir og viðhald á vernduðum húsum.
-Helstu tímabil og einkenni íslenskrar byggingarsögu.
-Framkvæmd viðhaldsverkefna.
-Byggingatæknilegar áskoranir varðandi viðgerðir og viðhald húsa.
-Að loknu námskeiði á nemandi að:
-Þekkja helstu laga- og reglugerðarákvæði um viðhald eldri húsa.
-Kunna skil á einkennum gamalla íslenskra húsa.
-Vita hvernig staðið er að framkvæmdum við eldri hús.

Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er haldið á Árbæjarsafni og verða safnhúsin þar skoðuð út frá byggingartækni og efnisnotkun.

 Skráning fer fram hér.