Fara í efni

Síðdegispopp stafrænna hugvísinda

Sigurður Gunnarsson, fagstjóri tækni og ljósmyndunar hjá Listasafni Íslands, heldur fyrsta erindið í nýrri fyrirlestraröð Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista (MSHL) sem er kölluð Síðdegispopp stafrænna hugvísinda og mun fara fram á þriðjudögum í vetur kl. 16:30. Þessi fyrirlestur verður haldinn í stofu 209 í Eddu, þriðjudaginn 9. september kl. 16:30-17:30. Verið öll velkomin.

Sigurður flytur erindi sitt Þegar blár er ekki blár: Um varðveislu lita í stafrænum afritum meistaraverka þar sem hann mun fjalla um áskoranir sem fylgja því að fanga listaverk með ljósmyndun – og hvernig þær áskoranir eru leystar. Hann mun fjalla um hvernig á að búa til áreiðanlegar stafrænar endurgerðir, ná litunum nákvæmlega réttum og hvaða traustu aðferðir og staðla fagfólk notar til að tryggja að stafræna afritið líti út eins og listaverkið í raunveruleikanum.

Í fyrirlestraröð MSHL munu sérfræðingar úr ýmsum greinum stafrænna hugvísinda og lista kynna rannsóknir sínar í stuttum og aðgengilegum fyrirlestrum. Boðið verður upp á ókeypis popp og nóg af hugmyndum til að deila!

Þau sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með fyrirlestrunum í streymi á YouTube-rás MSHL.

Smellið hér til að kynna ykkur dagskrá fyrirlestraraðarinnar.