Teiknað af konum - Brautryðjendur
Leiðsögn um sýninguna BRAUTRYÐJENDUR sem er fyrsti vísir að gagnasafninu TEIKNAÐ AF KONUM þar sem sjónum beint að þeim 28 íslensku konum sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980. Hér er hið byggða umhverfi skoðað í nýju ljósi og tengingar milli kynslóða og landamæra dregnar fram.
Í sýningarrýminu Arctic Space á Óðinsgötu 7 mun Henny Hafsteinsdóttir arkitekt segja frá þessum framsýnu brautryðjendum sem sóttu sér menntun út fyrir landsteinana - og sumar áttu reyndar rætur annars staðar. Sumar sneru heim til að byggja upp og leggja net nýs skipulags yfir íslenska bæi og borgir, móta stjórnsýslu sveitarfélaga og efla fagfélagið til að byggja upp þann mikilvæga menningarramma sem fagið hvílir á - á meðan aðrar kusu sér starfsvettvang erlendis. Áhrif þeirra og faglegur metnaður hefur sett varanlegt spor á íslenska byggingarlist en þau hafa jafnframt náð langt út fyrir Ísland. Þar má telja til framsæknar skólabyggingar í Frakklandi og félagslegar byggingar í Svíþjóð – sumar svo mikilvæg tímamótaverk að þær hafa verið friðaðar vegna menningarsögulegs gildis. Byggingar og verk þeirra liggja enn víðar; meðal annars í Bandaríkjunum, á Ítalíu – í hjarta norræns samstarfs í Færeyjum, endurreisn tuga kastala í Skotlandi og í skipulagsmálum í Mósambík.
Athugið að hámarksfjöldi á viðburðinn er 15 og því er skráning nauðsynleg á netfangið info@arcticspace.is