Fara í efni

Útgáfuhóf Ólafíu VI - GUS

Félag fornleifafræðinga býður í útgáfuhóf á bókinni

The Complex Development of a Norse Greenlandic Farm: Analyses of the Buildings at the GUS-site.

Ólafía, rit Félags fornleifafræðinga, snýr aftur með pompi og prakt. Að þessu sinni er von á viðhafnarútgáfu í tilefni af 20 ára afmæli Ólafíu og engu hefur verið til sparað. Útgáfan er rúmlega 300 blaðsíðna harðspjalda bók með titilinn: The Complex Development of a Norse Greenlandic Farm: Analyses of the Buildings at the GUS-site. 

Höfundar bókarinnar eru fornleifafræðingarnir Guðmundur Ólafsson, Svend Erik Albrethsen og Jette Arneborg og er hún gefin út af Félagi fornleifafræðinga og Þjóðminjasafni Grænlands. Bókin hefur verið í bígerð í áratugi og loks kemur út heildstætt rit yfir rannsóknirnar á Gården under Sandet (GUS).

Í tilefni af útgáfunni heldur Félag fornleifafræðinga útgáfuhóf á Þjóðminjasafninu 6. júní á milli 15:00-17:00 þar sem bókin verður til sölu á staðnum. Haldnar verða stuttar ræður og boðið upp á léttar veitingar.