Verbúðalíf á Höfnum á Skaga
Verbúðalíf á Höfnum á Skaga
Ásta Hermannsdóttir, Lísabet Guðmundsdóttir og Lilja Björk Brinks
Ísland er eyja í Norður-Atlantshafi! Í sjónum sem umlykur eyjuna eru auðlindir sem fólk hefur sóst í frá því að land var numið. Við sjávarsíðuna bjó fólk sem aflaði verðmætanna, verkaði þau og kom þeim í verð. Þar myndaðist vísir að þéttbýli þó svo að búseta hafi þar eingöngu verið á árstíðabundnum grundvelli. Nú stöndum við á ákveðnum tímamótum. Loftslagsbreytingar af mannavöldum leiða til hnattrænnar hlýnunar, hækkunar sjávarmáls og aukinna öfga í veðurfari. Áhrif loftslagsbreytinganna snerta ekki eingöngu nútímann og framtíðina - heldur einnig fortíðina. Landbrot við sjávarsíðuna er að aukast og þar með er saga fólksins við sjóinn, sagan okkar, að hverfa í sæ. Á Höfnum á Skaga var umfangsmikil verstöð en þar er landbrot viðvarandi vandamál. Árið 2022 hófust fornleifarannsóknir á Höfnum og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í ár. Í fyrirlestrinum verður fjallað um líf og samfélag við sjóinn á miðöldum og af hverju rannsóknir við sjávarsíðuna skipta sköpum fyrir samfélagið okkar í dag.
Fyrirlesturinn er hluti af Nýjar rannsóknir í fornleifafræði 2025, fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga og námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer fram miðvikudaginn 25. febrúar kl. 12 í stofu A050 í Aðalbyggingu HÍ en honum verður einnig streymt á Zoom, hægt að fylgjast með hér: Fyrirlesturinn í streymi