Fara í efni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fornminjasjóð

Strandminjar á Reykjanesi
Strandminjar á Reykjanesi

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fornminjasjóð fyrir árið 2026. Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2027.

Hlekk á umsóknarkerfi og nánari upplýsingar um samninga og styrkgreiðslur er að finna hér ⇒ Umsóknir í fornminjasjóð | Minjastofnun

Hlutverk fornminjasjóðs er að stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornminjum. Úthlutað er styrkjum til eftirfarandi verkefna:

  • Rannsókna á fornminjum (fornleifum og forngripum)
  • Miðlunar upplýsinga um fornminjar
  • Varðveislu og viðhalds fornminja

Sérstaklega er horft til umsókna um styrki til skráningar jarða þar sem minjar eru í hættu vegna ágangs sjávar.

Sjóðnum er jafnframt heimilt að veita styrki til viðhalds annarra menningarminja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi, t.d. minja sem njóta ekki friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislugildi, svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja. Umsóknir eru metnar með tilliti til vísindalegs og menningarsögulegs gildis og þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið í minjavernd, ásamt gildi þeirra fyrir varðveislu þjóðararfleifðarinnar.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun. Umsóknir fara í gegnum Stafrænt Ísland á island.is og því þarf að notast við rafræn skilríki í umsóknarferlinu. Þau sem ekki hafa rafræn skilríki geta haft samband við Minjastofnun Íslands á netfangið fornminjasjodur@minjastofnun.is og fengið leiðbeiningar við gerð umsókna.

Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr fornminjasjóði og hefur jafnframt eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við lög nr. 80/2012 og reglur stofnunarinnar og í samræmi við innsend umsóknargögn. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur, er að finna hér ⇒ Fornminjasjóður | Minjastofnun