Fara í efni

Starf minjavarðar Norðurlands eystra laust til umsóknar

Minjastofnun Íslands er stjórnsýslustofnun sem fer með vernd, rannsóknir, viðhald og aðra umsýslu jarðfastra menningarminja í umboði mennta- og menningarmálaráðherra. Stofnunin hefur umsjón með fornleifa- og húsvernd á Íslandi og veitir m.a. leyfi til allra staðbundinna og tímabundinna fornleifarannsókna og lætur eftir föngum skrá allar jarðfastar minjar, hús, mannvirki og fornleifar og styður við rannsóknir og vernd minjanna. Minjastofnun Íslands starfar á grundvelli laga nr. 80/2012.

Minjastofnun Íslands auglýsir laust til umsóknar starf minjavarðar Norðurlands eystra.

Ábyrgð og verksvið:

Starfssvið minjavarðar Norðurlands eystra er í samræmi við ákvæði í lögum nr. 80/2012. Starfssvæði hans er á Norðurlandi og tekur yfir Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslur. Minjavörður hefur umsjón og eftirlit með minjum á svæðinu og er umsagnaraðili og ráðgjafi vegna framkvæmda er snerta minjavernd. Minjavörður fer með daglega stjórn skrifstofu minjavarðar, stýrir minjaráði og ber að stuðla að markvissri starfsemi í minjavernd á svæðinu, viðhaldi minja og sjálfbærri nýtingu þeirra. Hann sér um gerð verkáætlana í samræmi við stefnu Minjastofnunar Íslands. Hann ber ábyrgð á að áherslur og forgangsröðun verkefna samrýmist stefnu Minjastofnunar Íslands og fjárhagsramma stofnunarinnar.

Nánari upplýsingar um starf minjavarðar er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands: www.minjastofnun.is.

Menntunar- og hæfniskröfur:

Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er áskilin.

Stjórnunarreynsla og hæfni í mannlegum samskiptum.

Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.

Færni í íslensku, ensku og helst einu Norðurlandamáli, jafnt töluðu sem rituðu máli.

 

Um er að ræða fullt starf. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.

Umsókn með ferilskrá sendist Minjastofnun Íslands, Suðurgötu 39, 101 Reykjavík eigi síðar en 1. febrúar 2019.

Upplýsingar veitir Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður:  kristinhuld@minjastofnun.is eða í síma 5701300 og Þór Hjaltalín sviðsstjóri minjavarðasviðs: thor@minjastofnun.is, í síma 5701314.