Minjastofnun Íslands bárust alls 271 umsókn um styrki úr húsafriðunarsjóði vegna verkefna árið 2026, samtals að upphæð 1.243.927.679 kr.. Styrkir eru veittir til 218 verkefna, samtals að upphæð 363.500.000 kr..
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest tillögu bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar um að Vesturbær Hafnarfjarðar verði gerður að verndarsvæði í byggð. Um er að ræða merkan áfanga í vernd eldri byggðar, en Vesturbær Hafnarfjarðar er langstærsta verndarsvæði í byggð á Íslandi miðað við fjölda húsa. Innan svæðisins eru yfir 230 hús og húshlutar.
Fimmtudaginn 22. janúar var menningar- og búsetulandslag Laugarnestanga friðlýst við hátíðlega athöfn í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga. Fjölmennt var við athöfnina og voru erindi flutt af umhverfis-, orku – og loftslagsráðherra, borgarstjóra Reykjavíkur,forstöðumanni Minjastofnunar Íslands og fulltrúa Vina Laugarness.
Í hverri viku í desember munum við deila fróðleik tengdum byggingararfi og húsvernd í tilefni af 50 ára afmæli Evrópska Húsverndarársins og stofnunar Húsafriðunarsjóðs.
Í hverri viku í desember munum við deila fróðleik tengdum byggingararfi og húsvernd í tilefni af 50 ára afmæli Evrópska Húsverndarársins og stofnunar Húsafriðunarsjóðs.